Tilraunakvöld Tóma rýmisins

Tilraunakvöld Tóma rýmisins

SVIÐ
Kjallarinn
Svið
Kjallarinn
Verð
2.500/3.500 kr.
Frumsýnt
24.október 2026

Sviðslistafólk úr ólíkum áttum gerir tilraunir

Tóma rýmið er listamannarekið sviðslistarými með glænýtt og glæsilegt aðsetur úti á Granda. Á undanförnum árum hafa meðlimir Tóma rýmisins staðið fyrir mánaðarlegum tilraunakvöldum þar sem sviðslistafólki úr ólíkum áttum býðst að sýna brot úr verkum í vinnslu, kynna hugmyndir og skissur og gera tilraunir. Tóma rýmið mun standa fyrir tveimur slíkum tilraunakvöldum í Þjóðleikhúskjallaranum í vetur og bjóða áhorfendum að sjá það allra, allra ferskasta í íslenskum sviðslistum. Komið og takið þátt í tilrauninni!
Listrænn stjórnandi: Hallveig Kristín Eiríksdóttir.

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími