Skíthrædd
Hún leikur, dansar og syngur sig í gegnum hræðsluna og nýtir tónlist til að klífa skelfilegustu fjöllin.
„Skíthrædd” – er tragíkómískur sjálfsævisögulegur söngleikur eftir Unni Elísabetu, sem deilir persónulegum sögum úr lífi sínu. Unnur sýnir í verkinu hvernig áskoranir lífsins, hvort sem þær tengjast líkamlegum kvillum, kvíða eða lífshamlandi hræðslu eru ekki óyfirstíganlegar. Unnur tekur þetta alla leið og sýnir það að ef þú getur breytt lífshamlandi hræðslu í Broadway-númer þá er allt mögulegt. Hún leikur, dansar og syngur sig í gegnum hræðsluna og nýtir tónlist til að klífa skelfilegustu fjöllin. Með henni á sviðinu til halds og trausts eru Annalísa Hermannsdóttir og Halldór Eldjárn. Sýningin er í leikstjórn Katrínar Halldóru Sigurðardóttur.
Leikarar og hlutverk
Leikkona og söngkona: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir.
Söngkona og hljómsveitarmeðlimur: Annalísa Hermannsdóttir
Söngvari og hljómsveitarmeðlimur: Halldór Eldjárn
Listrænir stjórnendur
Höfundur og tónskáld: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Leikstjóri: Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Tónlistarstjóri: Halldór Eldjárn
Ljósahönnuður: Ásta Jónína Arnardóttir
Aðstoðarleikstjóri: Vigdís Hafliðadóttir
Framleiðandi: Kristín Ósk Sævarsdóttir