Skíthrædd
Hún leikur, dansar og syngur sig í gegnum hræðsluna og nýtir tónlist til að klífa skelfilegustu fjöllin.
Unnur Elísabet hefur verið skíthrædd í 40 ár! Hrædd við myrkrið, fífla, vindkviður og stundum eplabita. En nú er komið gott.
Í þessari stórskemmtilegu sýningu fer hún yfir það sem hefur hamlað henni í lífinu hingað til – í leik, dansi og söng. Með henni á sviðinu er Stórsveit eða tveggja manna band, þetta er lítið svið.
Unnur sýnir að ef það er hægt að breyta hræðslu í létt Broadway-númer þá er allt mögulegt.
Hægt er að hlusta á lögin úr sýningunni!
HlustaLeikarar og hlutverk
Leikkona, söngkona og framleiðsla: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir.
Söngkona og hljómsveitarmeðlimur: Annalísa Hermannsdóttir
Söngvari og hljómsveitarmeðlimur: Einar Lövdahl Gunnlaugsson
Listrænir stjórnendur
Höfundur og tónskáld: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Leikstjóri: Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Sýningarstjórn : Sigurður Starr Guðjónsson
Tónlistarstjóri: Halldór Eldjárn
Ljósahönnuður: Sigurður Starr Guðjónsson
Aðstoðarleikstjóri: Vigdís Hafliðadóttir
Framleiðandi: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Búningahönnuður: Sigrún Jörgensen
Markaðsstjóri: Mikael Emil Kaaber