Pétur Pan

Pétur Pan

Öll börn verða stór. Öll nema eitt.
Leikflokkur Húnaþings vestra
Dags
12. júní
Verð
4000 kr.
Svið
Kassinn
Lengd
84 mín
Kaupa miða Áhugaleiksýning ársins 2022

Klassískt og skemmtilegt ævintýri sem hentar öllum aldri

Þegar leiðtogi týndu barnanna, Pétur Pan, týnir skugga sínum í heimsókn til Lundúna, hjálpar hin ákveðna Vanda honum að festa skuggan aftur við sig. Í staðinn er henni boðið til Hvergilands.
Árið 1904 frumsýndi JM Barrie eitt mesta ævintýri sem nokkru sinni hefur verið leikið á sviði. Uppfullt af hafmeyjum, sjóræningjum og álfum, ættbálki týndra barna og krókódílum, stútfullt af töfrum og tiltækjum. Pétur Pan er fyndin og áhrifamikil sviðsetning á sögu sem er elskuð og dáð. Verkið hentar áhorfendum á öllum aldri.

Fullkomin sýning fyrir barnið eilífa í okkur öllum

Við fylgjumst með ævintýrum Péturs Pans og uppátækjasömu álfavinkonu hans, Skellibjöllu, þegar þau heimsækja börn í Lundúnum kvöld eitt, eftir að skyggja tekur. Með hjálp örlítils álfaryks hefja þau töfrandi ferð meðal stjarnanna sem ekkert þeirra mun nokkurn tíma gleyma. Allt frá tifandi krókódílum til grimma stríðsmanna, brjálaðra sjóræningja og sjálfs illmennisins Króks kafteins, þetta skemmtilega og sígilda ævintýri mun gleðja alla aldurshópa. Pétur Pan er fullkomin sýning fyrir barnið eilífa í okkur öllum!

Leikarar

Aníta Rós Brynjarsdóttir (Óhreinn)
Anna Guðjónsdóttir (Krulli)
Ástmar Yngvi Birgisson (Mulli/Krókódíll)
Ástríður Halla Reynisdóttir (Vanda)
Bríet Anja Birgisdóttir (Flautar)
Elín Rannveig Líndal (Hafmeyja)
Emelía Íris Benediktsdóttir (Jón)
Freydís Emma Vilhelmsdóttir (Nebbi)
Fríða Marína Magnúsdóttir (Tvíburi 2)
Gerður Rósa Sigurðardóttir (Pétur Pan)
Grétar Þór Bjarnason (Starri/Krókódíll)
Hörður Gylfason (Georg (faðir)/Krókur)
Ingi Hólmar Guðmundsson (Bendir)
Jessica Aquino (Skellibjalla)
Jóhann Smári Reynisson (Smiður)
Mohamad Abed Alhjl (Tékko/Krókódíll/Skuggi)
Rakel Alva Friðbjörnsdóttir (Villti Villi)
Ronja Dís Haraldsdóttir (Mikki)
Sigrún Birna Gunnarsdóttir (María (móðir))
Valdís Freyja Magnúsdóttir (Tvíburi 1)

Leikstjóri og höfundur leikgerðar: Greta Clough

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími