Grínkjallarinn
Fastagestir í hverri viku
FRUMSÝNING
30.10.2025
Svið
Kjallarinn
Verð
4.990 kr
Áætluð lengd
2 klst.
Uppistand alla fimmtudaga í Kjallaranum
Grínkjallarinn kom, sá og sigraði hjörtu grínþyrstra íslendinga á síðasta leikári Kjallarans og snýr því aftur í vetur, ferskari en nokkru sinni fyrr. Frábær skemmtun fyrir fjölskulduna, vinahópinn, vinnustaðinn, saumaklúbbinn, gönguhópinn, sértrúarsöfnuðinn eða hvern þann sem þarf að lyfta sér upp.
Glænýtt grínstjórateymi Grínkjallarans samanstendur af Vigdísi Hafliða, Heklu Elísabetu, Bolla Má og Guðmundi Einari, sem halda uppi fjörinu á fimmtudagskvöldum í vetur ásamt gestagrínurum úr úrvalsliði íslenskra uppistandara.