![Drag-Súgur: Svanasöngur](https://leikhusid.is/wp-content/uploads/2021/10/DS-Swansong-TLH-Poster-with-title-V1-e1633514516228-20x20.png)
Drag-Súgur: Svanasöngur
Drag-Súgur snýr aftur úr kófinu til að lip-synca sinn svanasöng. Félagsskapurinn hefur verið salt jarðar í grasrót dragsenunnar á Íslandi síðustu sex ár og nú er kominn tími til að kveðja með stæl í Þjóðleikhúskjallaranum. Einvalalið okkar besta draglistafólks mun sjá til þess að allir skemmti sér konung- og drottningarlega á þessari lokasýningu Drag-Súgs. Búist við ógleymanlegu kvöldi stútfullu af fjöri, gleði, hlátri, gráti, blóði, svita, tárum, gerviaugnhárum, hárkollum, glimmeri, brjóstum, bossum, dansi, drama og dragi!
Athugið 18 ára aldurstakmark á viðburðinn.
![](https://leikhusid.is/wp-content/uploads/2021/10/svanasongur_synmynd-20x17.png)