Gerðu ennþá meira úr kvöldinu – njóttu veitinga í glæsilegum forsal leikhússins!
Stórsöngleikurinn Sem á himni verður sannkölluð leikhúsveisla. Þú getur gert ennþá meira úr kvöldinu með því að panta veitingar (með 48 klst. fyrirvara). Þeir sem panta veitingar fyrirfram eiga frátekið borð í leikhúsinu.
Ólafur Ágústsson yfirkokkur Þjóðleikhússins hefur um árabil verið í hópi fremstu matreiðslumanna landsins. Hann hefur starfað á ýmsum af helstu veitingastöðum landsins og verið hluti af kokkalandsliði Íslands svo fátt eitt sé nefnt.
Svona pantar þú veitingar!
Skref 1
Opnaðu bókunarstaðfestingu sem þér barst í tölvupósti eftir miðakaup og smelltu á Skoða bókun
Skref 2
Smelltu á Panta veitingar og bættu við pöntunina þína því sem hugurinn girnist. Athugið að pantanir þurfa að berast í síðasta lagi 48 klst. fyrir sýningu.
Verið velkomin í Þjóðleikshúið
Forsalur Þjóðleikhússins hefur fengið mikla andlitslyftingu á undanförnum árum. Einnig hefur forsalur Kassans verið tekinn algerlega í gegn. Við hlökkum til að taka á móti ykkur og munum leggja okkur fram um að gera ykkar heimsókn í leikhúsið að ánægjulegri upplifun.