18. Des. 2020

Hljóðleikhúsið – Ævintýri á gönguför

Hljóðleikhús Þjóðleikhússins flytur gamanleikinn sívinsæla Ævintýri á gönguför eftir Hostrup á fimmtudaginn 17. desember kl. 20:00 í beinu hljóðstreymi úr Þjóðleikhúsinu. Verkið er jafnframt það síðasta sem Hljóðleikhúsið sendir út í bili. Fjöldi valinkunnra leikara tekur þátt í uppfærslunni og leikstjóri er Guðjón Davíð Karlsson.

Verkið hefur notið gríðarlegra vinsælda á Íslandi í gegnum tíðina eða frá því það var frumflutt árið 1882 og er eitt mest uppsetta verk íslenskrar leiklistarsögu. Lögin eru landsmönnum mörgum að góðu kunn og er lagið Ég vil fá mér kærustu þeirra þekktast. Karl Olgeir Olgeirsson hefur umsjón með tónlistarflutningnum.

Leikarar: Þröstur Leó Gunnarsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Örn Árnason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Oddur Júlíusson, Guðjón Davíð Karlsson, Atli Rafn Sigurðarson, Hallgrímur Ólafsson, Bjarni Snæbjörnsson

Leikstjóri: Guðjón Davíð Karlsson. Hljóðhönnun og hljóðstjórn: Aron Þór Arnarsson.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími