Falstaff verður fyrsta stóra uppsetning nýstofnaðrar óperu

Ólafur Kjartan Sigurðarson syngur titilhutverkið
Undirbúningur er hafinn fyrir fyrstu stóru uppfærslu hinnar nýstofnuðu Óperu sem er nú orðin kærkomin viðbót við Þjóðleikhúsið og menningarlíf landsins. Opnunarsýningin verður gamanópera Verdis, Falstaff, sem var frumsýnd í La Scala árið 1893 og er síðasta ópera tónskáldsins. Verkið er byggt á gamanleik Shakespeares Vindsórkonurnar kátu og segir frá hinum lífsglaða en fjárvana Falstaff sem hyggst vinna ástir tveggja giftra kvenna í Windsor til að komast yfir auðæfi þeirra. Í glettinni fléttu verksins mætast misskilningur, dulargervi og ung ást – og að lokum hlær sá best sem síðast hlær. Verkið verður flutt á íslensku.

Brynhildur Guðjónsdóttir mun leikstýra Falstaff
Brynhildur Guðjónsdóttir gengur til liðs við Óperuna og mun leikstýra opnunarsýningunni. Meðal nýlegra verkefna hennar eru Mannsröddin hjá Íslensku óperunni (2017), Ríkharður III í Borgarleikhúsinu (2018), sem hlaut sex Grímuverðlaun þar á meðal sýning ársins og leikstjóri ársins, Vanja frændi (2019) og stórsöngleikurinn Moulin Rouge(2025), sem hefur gengið fyrir fullum sal í Borgarleikhúsinu síðan í september 2025.
Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með titilhlutverkið í uppfærslunni. Hann hefur komið fram víða um heim og meðal annars sungið Niflungahringinn á Wagnerhátíðinni í Bayreuth. Fram undan eru sýningar á La Scala í mars og verkefni í Peking og Sjanghæ árin 2026 og 2027, auk frumraunar hans hjá Wiener Staatsoper á næsta starfsári.
Hér er um að ræða stóra sýningu með fullskipaðri hljómsveit, tíu einsöngvurum og kór, en sungið verður á íslensku. Með Falstaff hefst jafnframt samstarf Óperunnar við Sinfóníuhljómsveit Íslands og Hörpu. Hljómsveitarstjóri verður tilkynntur síðar. Falstaff verður frumsýnd í Eldborg í mars 2027.

Finnur Bjarnason er nýr óperustjóri
Nýskipaður óperustjóri, Finnur Bjarnason, segir um uppfærsluna: „Falstaff varð fyrir valinu til að fleyta hinni nýju Óperu af stað. Þetta er meistaraverk sem aldrei hefur verið flutt á Íslandi, býður upp á hlutverk fyrir stóran hóp söngvara og varpar jafnframt gamansömu ljósi á veikleika bæði einstaklinga og samfélagsins.“
Langþráður draumur óperuunnenda varð að veruleika 5. júlí 2025, þegar Alþingi samþykkti frumvarp Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, um breytingar á lögum um sviðslistir, sem fólu í sér stofnun Óperu sem er hluti af Þjóðleikhúsinu. Óperan mun sinna óperulistinni á breiðum grunni, með sýningum víðsvegar um landið, með aðstöðu í Hörpu og einnig í Þjóðleikhúsinu.