21. Jan. 2019

Baltasar og Þjóðleikhúsið leggja drög að uppsetningu á Villiöndinni

  • Pétur Gautur 2006

Þjóðleikhúsið og Baltasar Kormákur leggja nú drög að því að sviðsetja Villiöndina eftir Henrik Ibsen, en fyrirhugað er að frumsýna verkið næsta leikár.

Baltasar hefur leikstýrt fjölda leiksýninga í Þjóðleikhúsinu og víðar, en vegna anna við kvikmyndaleikstjórn og -framleiðslu í Bandaríkjunum og á Íslandi hefur hann ekki getað sinnt leikstjórn í leikhúsi frá því hann setti upp Gerplu í Þjóðleikhúsinu árið 2010. Meðal rómaðra leikstjórnarverkefna Baltasars í Þjóðleikhúsinu eru Þetta er allt að koma, Pétur Gautur, Ívanov, Leitt hún skyldi vera skækja, Hamlet, RENT og Draumur á Jónsmessunótt, en hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikstjórn sína á Þetta er allt að koma og Pétri Gaut.

Villiöndin var frumflutt árið 1885 og er af mörgum talið eitt allra besta leikrit norska skáldjöfursins Henriks Ibsens, og var síðast sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1996. Villiöndin er tragíkómískt verk þar sem sem sálfræðilegt innsæi skáldsins og hæfileiki til að greina mannlegan veruleika njóta sín til fulls.

Meðfylgjandi mynd er úr sýningu Baltasars Kormáks á Pétri Gaut í Þjóðleikhúsinu árið 2006.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími