Sváfnir Sigurðarson starfar sem markaðsfulltrúi Þjóðleikhússins, en er jafnframt starfandi tónlistarmaður og hefur gefið út tónlist í eigin nafni. Hann semur tónlist fyrir Eltum veðrið í Þjóðleikhúsinu í vetur. Sváfnir hefur starfað að markaðs- og kynningarmálum um árabil og var meðal annars markaðsstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Borgarleikhússins. Sváfnir var um tíma ráðgjafi í almannatengslum.
Starfsfólk Þjóðleikhússins
Sváfnir Sigurðarson
Markaðs- og kynningafulltrúi, Tónskáld og textahöfundur