Snorri Freyr Hilmarsson gerir leikmynd fyrir Umskipting í Þjóðleikhúsinu í vetur.
Snorri Freyr hefur gert fjölda leikmynda fyrir sjónvarp, kvikmyndir og leikhús.
Snorri Freyr lauk námi í leikmyndahönnun frá Tækniháskólanum í Birmingham 1989.
Fyrri verkefni Snorra við Þjóðleikhúsið eru Húsið, Spamalot, Sælueyjan, Sannar sögur af sálarlífi systra, Glanni glæpur í Latabæ, Hægan Elektra, Laufin í Toscana, Lífið þrisvar sinnum og Rakstur.
Meðal leikmyndaverkefna Snorra í Borgarleikhúsinu eru Svar við bréfi Helgu, Gulleyjan, Ferðalag Fönixins, Gyllti drekinn, Galdrakarlinn í Oz, Nýdönsk í nánd, Fólkið í kjallaranum, Nei ráðherra, Gauragangur, Jesús litli, Harry og Heimir – með öðrum morðum, Söngvaseiður, Fló á skinni, Mein kampf, Sekt er kennd, Belgíska Kongó, Draugalestin, Kvetch, Boðorðin níu, Sporvagninn Girnd, Öndvegiskonur og Blíðfinnur.
Snorri gerði leikmynd fyrir Rommí og Stjörnur á morgunhimni í Iðnó, Drög að svínasteik hjá EGG-leikhúsinu/Þjóðleikhúsinu, Tobacco Road hjá LA, Sweeney Todd, Tökin hert, Brottnámið úr kvennabúrinu og Don Giovanni hjá Íslensku óperunni, Kabarett hjá Á senunni og Úlfhamssögu hjá Öðru sviði og Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Meðal fjölda verkefna hans í sjónvarpi eru Sigla himinfley, Jörundur hundadagakonungur, Fiskur og Klængur sniðugi.
Hann gerði leikmynd fyrir kvikmyndirnar Undir trénu, Kona fer í stríð og nú síðast Dýrið.