Rán Ragnarsdóttir fer með hlutverk Helgu fögru í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu.
Rán stundar leikaranám í Listaháskóla Íslands. Hún er með framhaldspróf í rytmískum jazzsöng frá FÍH ásamt því að hafa lært í Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn. Rán hefur leikið og sungið frá unga aldri. Hún lék í Galdrakarlinum í Oz og Mary Poppins í Borgarleikhúsinu og fór með hlutverk Höllu hrekkjusvíns í uppsetningu Þjóðleikhússins á Ævintýrum í Latabæ. Hún lék í kvikmyndinni Hjartasteini. Hún fór nýlega með hlutverk Bellu í söngleiknum Eitruð lítil pilla í Borgarleikhúsinu og hlaut Grímutilnefningu fyrir.