Tónlistarmaður
Jóhannes Damian, betur þekktur sem JóiPé, er annar helmingur tvíeykisins JóiPé x Króli. JóiPé og Króli hafa gefið út fimm plötur frá árinu 2017. Þeir áttu mest seldu plötu ársins 2018 og sama ár sömdu þeir og fluttu lokalag Áramótaskaupsins. Þeir hafa hlotið Hlustendaverðlaunin sjö sinnum og Íslensku tónlistarverðlaunin fjórum sinnum. Jóhannes útskrifaðist af Tónsmíðabraut nýmiðla úr Listaháskólanum árið 2023. Hann kemur úr hip-hop bakgrunni en hefur nú heillast af leikhús- og sjónvarpstónlist. Hann samdi tónlist fyrir þættina Krautz in Seltjarnarnes sem voru sýndir á RÚV sumarið 2025. Nú stýrir hann tónlistinni í stórsöngleik Þjóðleikhússins, Ormstungu, sem er byggður á Gunnlaugs sögu ormstungu. Áður tónlistarstýrði hann Ævintýrum Orra óstöðvandi og Möggu Messi á vegum Þjóðleikhússins og þar á undan Jóla-Lólu sem sýnd var hjá Leikfélagi Akureyrar jólin 2024.