Hafsteinn Níelsson samdi ásamt Ólíver Þorsteinssyni söngleikinn Ormstungu sem Þjóðleikhúsið sýnir. Þeir Ólíver sömdu einnig söngleikinn Þorskasögu sem sýndur var í Afturámóti.
Hafsteinn Níelsson útskrifaðist af sviðshöfundabraut LHÍ vorið 2025. Hann lauk stúdentsprófi af leiklistarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ og hefur stigið á svið í ýmsum uppfærslum áhugafélaga, einkum á söngleikjum. Hann lék meðal annars titilhlutverkið í Hedwig and the Angry Inch í uppsetningu leikhópsins Gnosis og í Ljósku í gegn í uppfærslu Söngskóla Sigurðar Demetz. Hafsteinn starfar einnig sem raddleikari hjá Stúdíó Sýrlandi. Árum saman hefur Hafsteinn sviðsett sjálfan sig á samfélagsmiðlum, bæði á Snapchat og TikTok, og öðlast þar mikið fylgi.