Friðrika Benónýsdóttir þýðir Þetta er gjöf eftir Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur, ásamt höfundinum, fyrir Þjóðleikhúsið.
Friðrika vann lengi sem blaðamaður og bókmenntagagnrýnandi hjá ýmsum fjölmiðlum. Hún skrifaði rómaða ævisögu Ástu Sigurðardóttur, og hefur sent frá sér tvær skáldsögur og ljóðabók. Síðustu árin hefur hún einbeitt sér að þýðingum og komið hafa út á íslensku rúmlega þrjátíu skáldsögur sem hún hefur þýtt úr ensku, sænsku og dönsku. Fyrir þýðingar sínar hefur hún þrisvar verið tilnefnd til þýðingaverðlaunanna Ísnálarinnar.