/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Elín Snæfríður M. Conrad

/

Leikhússkóli Þjóðleikhússins, útskrift vorið 2025.

Elín Snæfríður lauk framhaldsprófi frá Listdansskóla Íslands vorið 2024 þar sem hún öðlaðist víðtæka þjálfun í klassískum ballett, nútímadansi og djassdansi. Hún var fulltrúi Íslands á Prix du Nord keppninni í Gautaborg árið 2023 og var valin til að koma fram sem sólóisti í uppsetningum Listdansskólans: Hnotubrjóturinn (2023), Árstíðirnar (2024) og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu: Dimmalimm og Svanavatnið (2021 og 2024). Í vetur hefur hún víkkað listrænan sjóndeildarhring sinn í Leikhússkóla Þjóðleikhússins þar sem hún hefur skrifað leikrit, spreytt sig í leiklist og hannað búninga fyrir sitt eigið leikverk. Einnig hefur hún komið að búningagerð sjónvarpsseríunnar Benedikt Búálfur (2025). Samhliða listferli sínum hefur hún stundað nám við Verzlunarskóla Íslands og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 2025 með viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í alþjóðafræðum á Alþjóðabraut.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími