/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Baltasar Kormákur

/

Baltasar Kormákur leikstýrir Íbúð 10B eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í Þjóðleikhúsinu í vetur.

Baltasar Kormákur útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1990 og hóf þá störf hjá Þjóðleikhúsinu þar sem hann lék í fjölda sýninga næstu árin. Hann hóf einnig snemma að leikstýra hér og víðar en leikstjórnarverkefni hans við Þjóðleikhúsið eru Gerpla, Þetta er allt að koma, Pétur Gautur, Ívanov, Leitt hún skyldi vera skækja, Hamlet, RENT og Draumur á Jónsmessunótt. Uppsetning Baltasars á Pétri Gaut var valin til sýninga á Ibsenhátíðinni í Osló og í Barbican-leikhúsinu í London. Kvikmynd Baltasars Brúðguminn var byggð á sýningu hans á Ívanov í Þjóðleikhúsinu, og sömu leikarar fóru með helstu hlutverk í leiksýningunni og kvikmyndinni. Baltasar hóf snemma að fást við kvikmyndagerð, skrifa handrit, leikstýra og framleiða, og stofnsetti m.a. framleiðslufyrirtækið RVK Studios. Hann hefur gert fjölda kvikmynda á Íslandi og á erlendri grundu, auk þess sem hann hefur farið með burðarhlutverk í fjölda mynda. Meðal nýjustu kvikmynda sem hann hefur leikstýrt er hin rómaða mynd Snerting sem byggð var á samnefndri bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Meðal annarra kvikmynda Baltasars eru Adrift, Eiðurinn, Everest, The Missionary, 2 Guns, Djúpið, Contraband, Brúðguminn, Mýrin, Hafið og 101 Reykjavík. Hann hefur einnig staðið að gerð sjónvarpsþáttaraða sem framleiðandi, leikstjóri og höfundur, og má þar nefna King & Conqueror, Ófærð I, II og III og Kötlu í samstarfi við Netflix. Kvikmyndir og sjónvarpsþættir Baltasars hafa unnið til fjölda verðlauna víða um heim. Leiksýningar Baltasars hafa hlotið fjölda Grímuverðlauna og Baltasar hlaut Grímuna fyrir leikstjórn sína á Þetta er allt að koma og Pétri Gaut.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími