Ævar Þór er höfundur leikritsins Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag í Þjóðleikhúsinu leikárið 2019-2020
Ævar Þór er leikari og rithöfundur.
Hann vann áður sem leikari við Þjóðleikhúsið og lék þá í fjöldamörgum sýningum, meðal annars Vesalingunum, Englum alheimsins, söngleiknum Spamalot og sjálfan Lilla klifurmús í Dýrunum í Hálsaskógi.
Hann hefur einnig haslað sér völl á síðustu árum sem einn vinsælasti barnabókahöfundur þjóðarinnar, fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir starf sitt sem Ævar vísindamaður og var árið 2017 valinn sem einn af Aarhus39, 39 bestu barnabókahöfundum Evrópu undir fertugu. Þá hefur hann fimm sinnum staðið fyrir lestrarátökum á landsvísu og var í fyrra tilnefndur til Astrid Lindgren-verðlaunanna sem sérstakur lestrarhvetjari.
Leikrit hans Þitt eigið leikrit I – Goðsaga var tilnefnt til Grímunnar sem barnasýning ársins.
Ævar er með vefsíðu á www.aevarthor.com