Anna Katrín Einarsdóttir útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands árið 2016 og lauk mastersnámi í sviðslistum frá Den Danske Scenekunstskole árið 2022. Hún hefur unnið að fjölbreyttum sviðlistaverkefnum á Íslandi og erlendis sem leikstjóri, aðstoðarleikstjóri, framleiðandi og verkefnastjóri. Hún er aðstoðarleikstjóri í Íbúð 10B í Þjóðleikhúsinu í vetur. Í Þjóðleikhúsinu vann hún að sýningunum Rómeó og Júlíu, Fly me to the Moon og Álfahöllinni. Hún leikstýrði m.a. Brændende Hemmelighed í Aarhus Teater, söngleiknum Clueless í eigin leikgerð og tónlistarverkinu 3-objekter með tónlist eftir Önnu Bignami og texta eftir Reginu Rex. Anna Katrín hefur verið í listrænu teymi vistmiðjuðu sviðslistahátíðarinnar Plöntutíðar frá stofnun hátíðarinnar árið 2020 og fór með afleggjara hátíðarinnar til Finnlands árið 2022. Árin 2023–2024 starfaði hún hjá útgáfu- og framleiðslufyrirtækinu marvöðu þar sem hún sinnti verkefnastjórnun og listrænni þróun.
Starfsfólk Þjóðleikhússins