Veggspjald: Dýrin í Hálsaskógi – frumsýnt í september 2027

Dýrin í Hálsaskógi

Nú getur þú byrjað að hlakka til!

Svið
Stóra sviðið
Frumsýning
Sept. 2027
Leikstjórn
Agnes Wild
Höfundur
Thorbjørn Egner
–dagar
–klst
–mín
–sek
Gjafakort · Þjóðleikhúsið Dýrin í
Hálsaskógi
Stóra sviðið · 2027
Til hamingju

Þú átt miða inn í Hálsaskóg!

  • Handhafar gjafakorta verða fremstir í röðinni þegar opnað verður fyrir sætaval.
  • Þú færð tilkynningu í tölvupósti um leið og sætavalið opnar.
  • Geymdu kortið vel – það er lykillinn þinn að skóginum.
Gefa fleiri gjafakort

Hver kynslóð fær sína Dýr

Dýrin í Hálsaskógi, Kardemommubærinn og Lína Langsokkur eru vinsælustu barnaleikrit þjóðarinnar og í algjörum sérflokki. Um það bil á tíu ára fresti fer ný kynslóð inn í Hálsaskóg – og nú er komið að þeirri sjöttu.

5uppsetningar
346sýningar
165.450leikhúsgestir
65ár í Hálsaskógi
Úr fórum Þjóðleikhússins

Albúmið

Manstu eftir röndóttu peysunum? Gítarnum hans Lilla? Mikka ref þegar hann læddist að? Flettu í gegnum sextíu og fimm ár af Hálsaskógi á Stóra sviðinu.

Bessi (Mikki) og Árni (Lilli), 1962
Bessi (Mikki) og Árni (Lilli)
1962

Leikstjóri: Klemenz Jónsson

Glænýtt verk frá Noregi ratar á Stóra sviðið. Bessi og Árni verða á augabragði ódauðlegir í hugum íslenskra barna.

Thorbjørn Egner hannaði sjálfur búningana!

Mikki refur
Bessi Bjarnason
Lilli klifurmús
Árni Tryggvason
50 sýningar
27.655 gestir
Línan sýnir gesti miðað við metárið 2012 (38.079)
Bessi Bjarnason sem Mikki refur, 1977
Bessi Bjarnason sem Mikki refur
1977

Leikstjóri: Klemenz Jónsson

Fimmtán árum síðar snúa Bessi og Árni aftur í hlutverkin sín – og ný kynslóð barna kynnist Mikka og Lilla.

Sama tvíeykið – fimmtán árum síðar.

Mikki refur
Bessi Bjarnason
Lilli klifurmús
Árni Tryggvason
50 sýningar
34.125 gestir
Línan sýnir gesti miðað við metárið 2012 (38.079)
Siggi (Mikki) og Örn (Lilli), 1992
Siggi (Mikki) og Örn (Lilli)
1992

Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir

Ný kynslóð, nýr Mikki og nýr Lilli. Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason taka við keflinu.

Mikki refur
Sigurður Sigurjónsson
Lilli klifurmús
Örn Árnason
65 sýningar
28.235 gestir
Línan sýnir gesti miðað við metárið 2012 (38.079)
Þröstur Leó sem Mikki refur, 2002
Þröstur Leó sem Mikki refur
2002

Leikstjóri: Sigurður Sigurjónsson

Flestar sýningar frá upphafi – 91 sýning fyrir fullu húsi.

Mikki frá 1992 sest í leikstjórastólinn!

Mikki refur
Þröstur Leó Gunnarsson
Lilli klifurmús
Atli Rafn Sigurðarson
91 sýningar
37.356 gestir
Línan sýnir gesti miðað við metárið 2012 (38.079)
Veggspjaldið 2012, 2012
Veggspjaldið 2012
2012

Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir

Flestir gestir frá upphafi. Krakkarnir sem sáu þessa sýningu eru nú sjálfir orðnir stórir.

Mikki refur
Jóhannes Haukur Jóhannesson
Lilli klifurmús
Ævar Þór Benediktsson
90 sýningar
38.079 gestir
Metár – flestir gestir frá upphafi!
?Næsti kafli
2027

Leikstjóri: Agnes Wild

Agnes leikstýrði Línu Langsokk sem kveður nú Stóra sviðið eftir að hafa verið valin barnasýning ársins og sýnd fyrir fullu húsi. Nú tekur hún við Hálsaskógi.

Mikki refur
?
Lilli klifurmús
?

…og þú átt sæti í salnum!

Íbúar skógarins

Hverjir búa í Hálsaskógi?

Í Hálsaskógi búa mýs og birnir, héri og refur – og flest vilja þau bara fá að lifa í friði. Vandinn er bara sá að sumir eru alltaf svangir…

Stóra spurningin

Hver verður Mikki refur?

„Látt’ekki eins og þú sért ekki þarna. Ég sé þig vel.“

Mikki refur er eitt eftirsóttasta hlutverk íslensks leikhúss. Bessi Bjarnason, Sigurður Sigurjónsson, Þröstur Leó Gunnarsson og Jóhannes Haukur Jóhannesson hafa allir læðst um Hálsaskóg – og nú bætist nýr refur í hópinn.

Fylgstu með – hulunni verður svipt af nýjum Mikka innan skamms. Og hver leikur Lilla klifurmús? Það kemur í ljós síðar…

Mikki refur í gegnum árin: Bessi Bjarnason 1962/1977, Siggi Sigurjóns 1992, Þröstur Leó 2002, Jóhannes Haukur 2012 – og spurningarmerki fyrir 2027
Fyrir mömmur, pabba, ömmur og afa

Hvaða Dýr sást þú?

Sláðu inn fæðingarárið þitt og við segjum þér hvaða uppsetningu þú sást líklegast sem barn – og hver hræddi úr þér líftóruna sem Mikki refur.

Bessi Bjarnason sem Mikki refur
Manstu eftir mér?
Einstök vinátta

Bréfið sem breytti öllu

Þegar Dýrin í Hálsaskógi voru fyrst sýnd í Þjóðleikhúsinu árið 1962 var verkið glænýtt. Höfundurinn sjálfur, Thorbjørn Egner, kom til Íslands og hannaði búningana. Hann varð svo hrifinn af Þjóðleikhúsinu að nokkrum árum síðar skrifaði hann Guðlaugi Rósinkranz þjóðleikhússtjóra bréf – og gaf leikhúsinu sýningarréttinn til hundrað ára.

„…og þess vegna vil ég gjarnan – í von um að Kardemommubærinn og Hálsaskógur verði leikin ótal sinnum enn á komandi árum, þegar ný börn vaxa úr grasi – að Þjóðleikhúsið hafi næstu hundrað árin sýningarréttinn á Íslandi á báðum gamanleikjum mínum, og að öll höfundarlaun fyrir Kardemommubæinn og Hálsaskóg renni héðan í frá til styrkja eða annars sem orðið getur leikhúsinu til gleði.“ Thorbjørn Egner, Ósló 14. október 1965 · lausleg þýðing úr norsku

Í sama bréfi segir Egner að það sé „hreint ævintýralegt“ að Kardemommubærinn hafi verið sýndur nærri hundrað sinnum í Reykjavík – sem miðað við höfðatölu sé heimsmet sem seint verði slegið.

1962Egner hannar búningana fyrir fyrstu uppsetninguna
1965Bréfið er skrifað í Ósló
100 ársýningarréttur Þjóðleikhússins
2027Sjötta uppsetningin á Stóra sviðinu
Bréf Thorbjørns Egner, stækkað
Smá leikur

Hvaða dýr í Hálsaskógi ert þú?

Leikurinn er að hlaðast…

Sjáumst í Hálsaskógi!

Frumsýning september 2027 Svið Stóra sviðið Leikstjórn Agnes Wild Höfundur Thorbjørn Egner
Kaupa gjafakort

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími