20. Okt. 2026

Magnþrungin frumsýning á Höggi


Leikritið Högg eftir James Graham var frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins föstudaginn 16. október. Það er óhætt að segja að sýningarinnar hafi verið beðið með óþreyju. Verkið segir raunverulega sögu Jabobs Dunne sem varð valdur að mannsláti þegar hann sló annan mann, James Hodgkinson, einu höggi í Nottingham árið 2011.  Leikritið rekur sögu Jacobs fyrir og eftir þennan hörmulega atburð og hvernig hann tókst á við afbrot sitt með aðferðum svokallaðrar uppbyggilegrar réttvísi (restorative justice) sem er hugmyndafræði sem byggir á því að koma á sambandi á milli geranda og þolanda og leita einhvers konar sátta eða skilnings.

Kaupa miða

Boltinn fór að rúlla þegar foreldrar James, þau David og Joan, samþykkja að hefja bréfaskriftir við Jacob til þess að reyna að leita svara við þeim ótal spurningum sem á þeim brenna í sorg sinni og missi.

 

Það sem gerði frumsýninguna enn magnaðri en ella var auðvitað sú staðreynd að persónur sögunnar, þeir Jacob og David, voru gestir á frumsýningunni. Undir lok sýningarinnar var ekki laust við að flestir leikhúsgestir væru á valdi tilfinninganna enda hreyfir sýningin rækilega við og snertir djúpt. Þegar þeir gengu á svið í lokin og þökkuðu leikurum og listrænum stjórnendum fyrir að segja sögu sína ætlaði þakið bókstaflega að rifna af húsinu.

Það er oft talað um erindi leikhússins. Að hlutverk þess sé að endurspegla samfélagið, dýpka skilning okkar á manneskjunni og að setja mikilvæg mál á oddinn. Leikritið Högg sameinar allt þetta á hátt sem við eigum ekki að venjast. Við öll í Þjóðleikhúsinu erum þakklát fyrir að fá að segja þessa sögu.

 

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími