13. Okt. 2026

Námskeið í framleiðslu sviðsverka í Þjóðleikhúsinu

Þann 24. október stendur Þjóðleikhúsið fyrir hagnýtu námskeiði í framleiðslu og verkefnastjórnun sviðsverka. Námskeiðið er hluti af stærra verkefni þar sem leikhúsið eflir grasrótina með sérstökum námskeiðum fyrir áhugaleikfélög og framhaldsskólaleikfélög.

Áhugaleikfélög landsins eru mikil auðlind og sinna gríðarlega mikilvægu starfi um allt land. Til að nýta þá þekkingu og hæfni sem býr í Þjóðleikhúsinu og styðja við þetta mikilvæga starf verður boðið upp á þrjú námskeið á leikárinu 2026–2027. Fyrsta námskeiðið verður í framleiðslu sviðsverka, en í janúar 2027 bætast við námskeið í ljósa- og hljóðhönnun og sýningarstjórnun. Öll námskeiðin eru kennd í Þjóðleikhúsinu af fagfólki hússins.

 

Framleiðsla og verkefnastjórnun

 

Námskeiðið þann 24. október hentar einkar vel stjórnar- og nefndarmeðlimum leikfélaga, sem og öllum þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á verkefnastýringu og framleiðslu leiksýninga. Áhersla er lögð á undirbúningsvinnuna áður en æfingar hefjast, en einnig á eftirfylgni með framleiðsluferlinu allt fram að frumsýningu.

Þátttakendur fá tækifæri til að efla færni sína í skipulagi, samskiptum og lausnamiðaðri hugsun sem er nauðsynleg í lifandi sviðslistum. Á námskeiðinu verður víða komið við og hlutverk framleiðandans og framleiðslustjórans skoðuð ítarlega. Farið verður í gegnum hugmyndavinnu, val á verkefnum og starfsfólki ásamt mikilvægri undirbúningsvinnu sem snýr að rými, höfundarrétti og áhættustjórnun auk öryggismála í framleiðslu. Einnig verður tekið á fjármögnun verkefna og fjármálastjórnun, markaðssetningu sýninga, uppsetningu framleiðsluferlis og gerð framleiðsluáætlunar. Þá verður sérstök áhersla lögð á verkefnastjórnun, úthlutun tíma og skilvirk samskipti.

Laugardaginn 24. október – Kl. 09:30 – 15:00

Verð: 15.000 krónur

Skráning hér

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími