Ösku(fj**dans)buska

Ösku(fj**dans)buska

Ævintýri, ballett, uppistand, píanótónleikar og hreinsunareldur
Höfundar
Erna Ómarsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Saga Kjerúlf Sigurðardóttir
Svið
Kjallarinn

Verk í vinnslu sýnt í samstarfi við Reykjavík Dance Festival

Í framhaldi af rómuðum sýningum Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur þar sem unnið var með tónlist Prokofíevs við Rómeó og Júlíu, vinna þær Ernu og Halla, í samstarfi við Sögu, nú að nýju verki byggðu á tónlist Prokofíevs við Öskubusku, og bjóða okkur að sjá verk í vinnslu í Leikhúskjallaranum á RDF. Á sviðinu eru þrír dansarar og tveir píanóleikarar sem leiða okkur inn í óreiðukennda leit að von á meðan við elskum að hata að vera þvinguð í einvíð form. Eða skó.

Öskubuska og stjúpsysturnar – þær birta okkur hina ófullkomnu og örvæntingarfullu mannssál, grimmd hennar, fegurð, hégóma, öfund, draumóra og varnarleysi. Þótt stjúpsysturnar birtist okkur iðulega sem illmenni búa þær við sömu takmarkanir og Öskubuska. Systurnar þrjár neyðast allar til að keppa hver við aðra í heimi þar sem afkoma þeirra er háð viðurkenningu karla. Ösku(fj**dans)buska býður áhorfendum inn í heim þar sem erfiði og alsæla næra hvort annað, áreynsla skapar fegurð og myrkur ævintýrisins er jafn mikilvægt og ljós þess.

 

 

Aðstandendur sýningar

Kóreógrafía, leikstjórn og dansarar
Hljóðmynd og lýsing
Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími