21. Apr. 2026

Þjóðleikhúsið kallar eftir leikverkum og vekur athygli á vinnustofu höfunda

Þjóðleikhúsið stendur á hverju leikári fyrir frumsköpun af ýmsu tagi, þróun á nýjum íslenskum leikverkum og stuðningi við höfunda. Við leitum nú að leikskáldum til að taka þátt í spennandi verkefnum framundan. Vinnustofa höfunda er liður í höfundastarfi leikhússins. Þar býðst listafólki vinnuaðstaða í Þjóðleikhúsinu í mánuð í senn, stuðningur við þróun leikverks, til dæmis með lokuðum leiklestri, og samtal við dramatúrga.

Höfundum býðst að senda inn verk sín til mögulegs flutnings á Gula dreglinum 2027 og/eða óska eftir þátttöku í Vinnustofu höfunda.

Einnig vekjum við athygli á því að leikhúsið er í stöðugu samtali við höfunda sem eru með handrit eða hugmyndir að verkum eða verk í þróun. Á hverju ári frumsýnir Þjóðleikhúsið fjölda nýrra íslenskra verka sem leikhúsið kaupir af íslenskum höfundum á grundvelli samnings við RSÍ. Höfundar geta alltaf sent leikhúsinu handrit, drög eða kynningu á leikritun@leikhusid.is.

Hér getur þú sent okkur handrit og/eða óskað eftir því að taka þátt í vinnustofu höfunda!

Senda handrit / Sjá vinnustofu

Frestur til að senda inn umsókn er til og með 4. maí.

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími