01. Apr. 2026

Óperan hefur ráðið Richard Schwennicke í stöðu tónlistarstjóra

Óperunni hefur nú bæst mikilvægur liðsauki en búið er að ráða Richard Schwennick í stöðu tónlistarstjóra.  Schwennick er hljómsveitarstjóri og píanóleikari með víðtæka reynslu frá leiðandi óperuhúsum í Evrópu. Undanfarin ár hefur hann starfað sem repetitör, söngþjálfari og hljómsveitarstjóri við Vínaróperuna, eitt virtasta óperuhús heims.

Hann lauk einleikaraprófi í píanóleik og síðar B.A.-prófi í hljómsveitastjórn með áherslu á óperu frá Hochschule für Musik, Theater und Medien Hannover. Hann starfaði sem aðstoðarkórstjóri og hljómsveitarstjóri í Kassel og Hannover, auk þess að gegna stöðu yfirmanns tónlistardeildar við Staatstheater Darmstadt, þar sem hann bar ábyrgð á skipulagi tónlistardeildar og undirbúningi söngvara.

Richard hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum sem stjórnandi og hefur meðal annars stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann talar fjölda tungumála, þar á meðal íslensku, og hefur jafnframt aflað sér mikillar þekkingar í samstarfi við fremstu stjórnendur Evrópu á sviði óperu.

„Það er mikill fengur fyrir Óperuna að fá Richard Schwennicke til liðs við sig. Hann mun eiga virkan þátt í uppbyggingu starfseminnar og þar mun reynslan sem hann kemur með frá Wiener Staatsoper og víðar nýtast vel. Ég hlakka til samstarfsins,“ segir Finnur Bjarnason, óperustjóri.

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími