Gæðablóðin Unnsteinn, Davíð og Jónmundur helga sér Stóra sviðið í skemmtilegri og afhjúpandi sýningu

Fimmtudaginn 12. mars frumsýnir Þjóðleikhúsið sýninguna Gæðablóð. Í sýningunni sem er um klst. löng deila þeir Davíð Þór Kristínarson, Jónmundur Grétarsson og Unnsteinn Manuel reynslu sinni og sviðsetja sprenghlægileg og grafalvarleg atvik úr eigin lífi sem afhjúpa samfélagið á óvæntan hátt. Þessir þrír listamenn eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. Í þessari einlægu sýningu deila þeir reynslu sinni og sviðsetja sprenghlægileg og grafalvarleg atvik úr eigin lífi sem afhjúpa samfélagið á óvæntan hátt. Leikararnir þrír eru einnig höfundar verksins ásamt leikstjóranum Þóru Karítas Árnadóttur.
„Ég bara sé ekki liti. Mér er bara alveg sama hvernig þú ert á litinn. Bara ef þú værir rauður eða FJÓLUBLÁR bara skiptir mig engu máli.“
„Fjólublár!? Ég ætla rétt að vona að ef ég væri fjólublár að þá myndirðu hringja á sjúkrabíl.“

Á undanförnum árum hefur leikhúslistafólk með fjölbreyttan bakgrunn miðlað sögum sínum með áhrifamiklum hætti í Þjóðleikhúsinu og veitt okkur öllum nýja innsýn inn í hinn margbreytilega veruleika okkar. Má þar nefna sýningar á borð við Góðan daginn faggi, Á rauðu ljósi og Taktu flugið beibí.
„Já en hvaðan ertu svona upprunalega?“
Nú er er komið að þeim Davíð Þór, Jónmundi og Unnsteini að helga sér Stóra sviðið!
Höfundar / Handrit
Davíð Þór Katrínarson
Jónmundur Grétarsson
Unnsteinn Manuel Stefánsson
Þóra Karítas Árnadóttir
Gréta Kristín Ómarsdóttir tók þátt í þróun verksins og fyrri hluta handritaskrifa.
„Þegar strákarnir sögðu svertingjabrandara hló ég með og fallegasta hrós sem ég fékk var:
En þú ert samt eiginlega ekki svartur.“
Listrænir stjórnendur
Leikstjórn
Þóra Karítas Árnadóttir
Leikmynd og búningar
Ingibjörg Jara Sigurðardóttir
Lýsing
Ásta Jónína Arnardóttir
Tónlist og tónlistarstjórn
Kristofer Rodriguez Svönuson
Hljóðhönnun
Kristján Sigmundur Einarsson
Framleiðslu- og sýningarstjórn
Sýningarstjórn
Elín Smáradóttir
Framleiðslustjórn
Máni Huginsson
Aðrir aðstandendur
Aðstoð við sviðshreyfingar
Ernesto Camilo Aldazábal Valdés
Yfirumsjón búninga
Sólveig Spilliaert
Yfirumsjón leikgerva
Ingibjörg G. Huldarsdóttir
Yfirumsjón leikmuna
Mathilde Anne Morant
Yfirumsjón á sviði
Siobhán Antoinette Henry
Teymisstjóri leikmyndadeildar
Jasmina Luiza Wojtyla
Yfirsmiður
Arturs Zorģis