Hreiðrið er einstök leikhúsupplifun fyrir allra yngstu leikhúsgestina

Laugardaginn 28. febrúar frumsýnir leikhópurinn Miðnætti, í samstarfi við Þjóðleikhúsið, glænýja íslenska barnasýningu með frumsaminni tónlist, sem hefur fengið nafnið Hreiðrið. Litla sviðinu hefur verið umbylt fyrir sýninguna og útbúið sérstaklega fyrir litla áhorfendur sem geta skriðið öruggir um mjúkt og litríkt rýmið. Í sýningunni eru fá orð notuð og notast er við tákn með tali. Þess vegna hentar sýningin vel börnum með ólík móðurmál og heyrnarskertum börnum. Kjörin fyrsta leikhúsupplifun!
Verkið er úr smiðju listafólksins í Miðnætti, leikhóps sem hefur skapað sér nafn fyrir frumlegar og vandaðar sýningar fyrir yngstu áhorfendurna, svo sem Tjaldið, Á eigin fótum, Geim-mér-ei og Þorra og Þuru. Einnig sköpuðu þær Agnes, Eva Björg og Sigrún hina dásamlegu sýningu Blómin á þakinu fyrir Þjóðleikhúsið.

Það vill reyndar svo skemmtilega til að leikstjórinn Agnes Wild er nú með sýningar á þremur sviðum Þjóðleikhússins. Lína Langsokkur gengur fyrir fullu húsi á Stóra sviðinu, Blómin á þakinu sem valin var barnasýning ársins fer nú aftur á fjalirnar í Kassanum vegna fjölda áskorana og nú bætist Hreiðrið við á Litla sviðinu.
Litlir ungar í leikhúsi
Inni á milli mjúkra þúfna og glitrandi stráa hefur lítill fugl búið sér hreiður. Þar liggur hann fullur eftirvæntingar og bíður þess að litlu undrin hans, eggin, klekist út. Hreiðrið er heillandi upplifunarleikhús fyrir börn frá þriggja mánaða til þriggja ára og fólkið þeirra. Litlum leikhúsgestum er boðið að setjast í hreiðrið, láta skynfærin njóta sín og taka þátt í leiknum með því að snerta, heyra, sjá og finna heim töfra, lita og hljóða.
Einstök leikhúsupplifun fyrir þau allra yngstu.
Aldursviðmið: 3ja mánaða til 3ja ára.
Sýningarlengd er um 40 mínútur, og boðið er upp á leikstund að lokinni sýningu.
Leikarar:
Jóhann Axel Ingólfsson
Ylfa Marín Haraldsdóttir
Listrænir stjórnendur
Höfundar
Miðnætti
Leikstjórn
Agnes Wild
Leikmynd, búningar og brúður
Eva Björg Harðardóttir
Tónlist
Sigrún Harðardóttir
Ljósahönnun
Jóhann Bjarni Pálmason
Hljóðhönnun
Aron Þór Arnarsson
Sviðshreyfingar
Agnes Wild og Nick Candy