Eyjólfur Gíslason er mannauðsstjóri Þjóðleikhússins. Hann gegndi áður stöðu deildarstjóra á flugrekstarsviði Icelandair, en deildin leiddi mannauðsmál, þ.m.t. ráðningar, starfsmannasamtöl, frammistöðumat, starfsþróun og stefnumótun á sviði mannauðsmála. Áður starfaði hann sem verkefnastjóri innan félagsins og sinnti fjölbreyttum verkefnum er varða þjónustu og upplifun viðskiptavina. Einnig hefur hann starfað sem fjölmiðlafulltrúi, ráðgjafi og fyrirlesari.
Eyjólfur er varabæjarfulltrúi í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og situr í velferðarráði bæjarins þar sem hann hefur látið sig samfélags- og velferðarmál varða. Hann er með meistarapróf í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst með áherslu á mannauðsstjórnun og B.A. próf í miðlun og almannatengslum frá sama skóla.