Þetta er gjöf. Nýtt leikrit frumsýnt á Litla sviðinu fös. 26. sept.
Nýtt íslenskt leikrit, Þetta er gjöf, verður sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu nú í september. Leikritið vísar í goðsöguna um Mídas en birtist hér í reykvískum veruleika. Verkið var frumsýnt í Skotlandi og var í kjölfarið sýnt hjá hinu rómaða Royal Shakespeare Company og valið á lista Women’s price for Playwriting.
Sóley kemur heim af djamminu um sumarnótt og finnur ókunnugan mann liggjandi meðvitundarlausan við útidyrnar. Hún og faðir hennar ákveða að skjóta skjólshúsi yfir manninn en ekki getur þau órað fyrir afleiðingunum.
Annar maður skýtur upp kollinum, vill þakka feðginunum fyrir hjálpsemina og býður föður Sóleyjar að óska sér einhvers. Hann lofar því að óskin muni rætast, hver sem hún er. Faðirinn eygir loksins von um að geta komið sér upp úr skuldasúpunni. En ekki er allt gull sem glóir.
Kolbrún Björt Sigfúsdóttir hefur haslað sér völl sem leikskáld og leikstjóri á Bretlandseyjum og víðar allt frá útskrift úr meistaranámi í leikstjórn árið 2013. Hún þreytir nú frumraun sína í íslensku atvinnuleikhúsi sem leikskáld og leikstjóri.
Leikritið Þetta er gjöf (e. This is a Gift) rataði á topplista Women’s Prize for Playwriting árið 2023 og var leiklesið hjá Royal Shakespeare Company í leikritaröðinni „37 Plays“ sama ár. Það var frumflutt hjá Pitlochry Festival Theatre í Skotlandi í sumar og hlaut þar frábæra dóma.
Ef þú gætir fengið eina ósk uppfyllta, hvers myndirðu óska þér?
Leikari: Katla Þórudóttir Njálsdóttir.
Leikstjórni og höfundur: Kolbrún Björt Sigfúsdóttir
Þýðing: Friðrika Benónýsdóttir og Kolbrún Björt Sigfúsdóttir
Aðstoðarleikstjórn: Hilmar Guðjónsson
Leikmynd og búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir
Tónlist: ROR
Lýsing: Garðar Borgþórsson
Hljóðhönnun: Kristján Sigmundur Einarsson