Improv-Ísland
Improv Ísland hefur kitlað hláturtaugar áhorfenda í Þjóðleikhúskjallaranum frá árinu 2016 og fjöldi gesta kemur aftur og aftur, enda eru engar tvær sýningar eins. Hver sýning er frumsýning og lokasýning á brakandi fersku gríni sem verður til á staðnum. Spunaleikarar skiptast á að sýna ólík spunaform og þjóðþekktir gestir kíkja í heimsókn og segja sögur úr eigin lífi sem notaðar eru í efnivið fyrir sýningu kvöldsins.
Improv Ísland hefur frá upphafi leitast við að hafa miðaverð hóflegt svo sem flest geti notið sýninga hópsins. Almennt miðaverð í ár er það sama og í fyrra 3.500 kr
Miðvikudagskvöld: Á miðvikudagskvöldum kíkir þjóðþekkt fólk í Þjóðleikhúskjallarann og segir sögur úr eigin lífi sem hópurinn notar sem efnivið fyrir sýningu kvöldsins. Engin sýning er eins!
Þriðjudagskvöld: Einu sinni í mánuði eiga nýliðar Improv Íslands sviðið og sýna Haraldinn (e. Harold). Haraldurinn er eitt allra þekktasta form spunans og hefur verið sýnt um allan heim frá því það var fundið upp í Kaliforníu árið 1967.
Þemasýningar: Einu sinni á önn tjaldar Improv Ísland öllu til og býður upp á sýningar út frá þemum þar sem söngur og dans ásamt gleði og gríni eru allt umlykjandi.
Almennt miðaverð í ár er það sama og í fyrra 3.500 kr.
Listrænn stjórnandi Improv Ísland er Sara Rut Árnadóttir
Kaupa gjafakort