/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Friðgeir Einarsson

Leikskáld
/

Friðgeir Einarsson er sviðslistamaður og rithöfundur, búsettur í Reykjavík. Hann útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2008 og hefur síðan tekið þátt í tugum leiksýninga sem höfundur og leikari, á vegum ýmissa leikhúsa og leikhópa og á sviðslistahátíðum erlendis.

Nýtt eldhús eftir máli er fyrsta leikrit Friðgeirs sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Verkið var leiklesið sem verk í vinnslu á leikritahátíð Þjóðleikhússins, Gula dreglinum, vorið 2025.

Friðgeir samdi og lék leikverkið Club Romantica á vegum leikhópsins Abendshow í Borgarleikhúsinu. Einnig samdi hann og lék leikverkið Útlendinginn – morðgátu í Borgarleikhúsinu.

Friðgeir er einn af meðlimum leikhópsins Kriðpleirs sem hefur vakið mikla athygli fyrir útvarpsleikverk og leiksýninguna Innkaupapokann. Hann starfaði einnig meðal annars með leikhópunum Ég og vinir mínir og 16 elskendum.

Friðgeir hefur komið talsvert að gerð leikins efnis fyrir sjónvarp og útvarp. Hann var einn af höfundum Áramótaskaups RÚV 2022 og 2024, og lék í þeim nokkur hlutverk. Friðgeir lék annað aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Hæst í Sjónvarpi Símans, og tók þátt í skrifum og þróun persóna verksins.

Friðgeir hefur getið sér gott orð sem rithöfundur og sent frá sér fimm bækur, skáldsögur og smásagnasöfn. Nýjasta ritverk hans er Serótónínendurupptökuhemlar, en áður komu út Stórfiskur, Ég hef séð svona áður, Formaður húsfélagsins og Takk fyrir að láta mig vita.

Friðgeir hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikrit ársins fyrir Club Romantica. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í Innkaupapokanum.

Friðgeir hefur ásamt leikhópum sem hann hefur starfað með hlotið ýmsar tilnefningar til Grímunnar fyrir leikrit, sýningu og útvarpsleikrit ársins, meðal annars ásamt Kriðpleiri fyrir Innkaupapokann, Crisis Meeting, Síðbúna rannsókn, Tiny Guy, Vorar skuldir og Litlu jólin, ásamt Abendshow fyrir Club Romantica, ásamt 16 elskendum fyrir sýninguna Sýningu ársins og ásamt leikhópnum Ég og vinir mínir fyrir Húmanimal.

 

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími