/
Frost – söngleikjanámskeið

Frábært tækifæri fyrir 7-15 ára börn!

Hefur þig langað til þess að fá meiri innsýn inn í heim söngleikja? Ert þú spennt/ur fyrir því að læra meira um leikprufur? Nú býðst einstakt tækifæri.

Chantelle Carey Creative Arts býður uppá Frost – söngleikjanámskeið í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Farið verður yfir hvernig prufuferli fer fram fyrir stórsýningar sem þessa. Einnig fá nemendur tækifæri til að læra og tileinka sér atriði úr Frost, þar sem farið verður í söng, leik og dans. Kennarar: Chantelle Carey, Vala Fannell og Birgir Þórisson

Námskeið helgina  26. og 27. október

Laugardagurinn 26. október kl. 13:30 – 17:00
Sunnudagurinn 27. október kl. 09:00 – 13:00

Innifalið:

  • Leik-, söng- og dansnámskeið
  • Skoðunarferð um húsið
  • Leikhúsmiði á Frost á sunnudeginum
  • Leikskrá
  • Hitta leikara og starfsfólk sýningarinnar

 

Verð 25.000 krónur
Hvert námskeið er takmarkað við 45 þátttakendur. Söngleikjanámskeiðið er fyrir 7 – 15 ára gömul börn.

Skráning og frekari upplýsingar: chantelle_carey@icloud.com

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími