Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson hafa samið tvo söngleiki í sameiningu, söngleikinn Ormstungu sem sýndur er í Þjóðleikhúsinu í vetur og söngleikinn Þorskasögu sem sýndur var í sumarleikhúsinu Afturámóti. Þeir vinna nú fyrir Þjóðleikhúsið að sínum þriðja söngleik.
Hafsteinn Níelsson útskrifaðist af sviðshöfundabraut LHÍ vorið 2025. Hann lauk stúdentsprófi af leiklistarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ og hefur stigið á svið í ýmsum uppfærslum áhugafélaga, einkum á söngleikjum. Hann lék meðal annars titilhlutverkið í Hedwig and the Angry Inch í uppsetningu leikhópsins Gnosis og í Ljósku í gegn í uppfærslu Söngskóla Sigurðar Demetz. Hafsteinn starfar einnig sem raddleikari hjá Stúdíó Sýrlandi. Árum saman hefur Hafsteinn sviðsett sjálfan sig á samfélagsmiðlum, bæði á Snapchat og TikTok, og öðlast þar mikið fylgi.