/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Jóhannes Damian R. Patreksson

Tónskáld
/

Tónlistarmaður

Jóhannes Damian R. Patreksson útskrifaðist af tónsmíðabraut nýmiðla úr Listaháskólanum 2023. Bakgrunnur hans í tónlist er hip-hop en hann hefur undanfarið einbeitt sér í auknum mæli að leikhús- og sjónvarpstónlist. Hann er tónlistarstjóri og meðhöfundur tónlistar í söngleiknum Ormstungu í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hann var tónlistarstjóri og annar tónlistarhöfunda í Orra óstöðvandi í Þjóðleikhússinu og tónlistarstjóri og einn af tónlistarhöfundum Jóla-Lólu hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann samdi tónlist fyrir þættina Krautz in Seltjarnarnes á RÚV. Jóhannes er einnig þekktur undir listamannsnafninu JóiPé, og er annar helmingur tvíeykisins JóiPé x Króli. JóiPé og Króli hafa gefið út fimm plötur, hlotið Hlustendaverðlaunin sjö sinnum og Íslensku tónlistarverðlaunin fjórum sinnum. Þeir áttu mest seldu plötu ársins 2018 og sama ár sömdu þeir og fluttu lokalag Áramótaskaupsins.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími