Sólrún Mjöll Kjartansdóttir útskrifaðist úr MÍT með framhaldspróf í rytmískum trommuleik árið 2021, en þar lærði hún undir handleiðslu Matthíasar M. Hemstock og Einars Vals Scheving. Sólrún starfar sem sessjónleikari bæði á hljómleikum og í upptökuverum og hefur komið að ýmsum verkefnum með fjölbreyttri flóru listamanna. Hún hefur komið víðsvegar fram á hljómleikum og tónlistarhátíðum bæði hérlendis og erlendis. Hún spilar nú í söngleiknum Ormstungu í Þjóðleikhúsinu og spilaði í Stormi og Frosti, og tók einnig upp trommur og slagverk fyrir sýningarnar Eltum veðrið og Taktu flugið, beibí.
Starfsfólk Þjóðleikhússins