/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Þóra Karítas Árnadóttir

Höfundur, Leikstjóri
/

Þóra Karítas Árnadóttir útskrifaðist með leiklistargráðu frá Webber Douglas Academy of Dramatic Art í London árið 2006. Hún leikstýrir Gæðablóði í Þjóðleikhúsinu í vetur og er jafnframt einn höfunda sýningarinnar. Hún leikstýrði hér einleiknum Orð gegn orði eftir Suzie Miller. Þóra Karítas hefur starfað sem leikkona hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar og með sjálfstæðum leikhópum. Hún framleiddi og lék einleikinn Ég heiti Rachel Corrie í samstarfi við Borgarleikhúsið og lék í Fool for Love í Austurbæ. Hún leikstýrði sýningunni Samdrættir í Tjarnarbíói. Þóra lauk BA gráðu í guðfræði og MA gráðu í ritlist frá HÍ. Hún hefur sent frá sér tvær bækur, Mörk – saga mömmu, sem var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna, og skáldsöguna Blóðberg. Árið 2019 ferðaðist Þóra til Malaví á vegum UN Women fyrir söfnunarþáttinn Stúlka – ekki brúður sem sýndur var á RÚV og sömuleiðis heimsótti hún Angóla árið 2021 á vegum Sjónvarps Símans og Republik Films sem umsjónarmaður þáttaraðarinnar Hver ertu? Þóra er eigandi Silfra Productions ehf. sem framleiðir heimildaþætti fyrir sjónvarp og vinnur um þessar mundir að nýrri heimildaþáttaröð fyrir RÚV. Þóra var tilnefnd til Grímunnar fyrir leikstjórn á Samdráttum og fyrir leik í Fool for Love. Hún var tilnefnd til Edduverðlaunanna fyrir leik í sjónvarpsþáttunum Ástríði.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími