Pussy Riot

Pussy Riot

Svið
Stóra sviðið
Sýnt
15. janúar

Blanda af tónleikum og gjörningalist

Þessi sýning Pussy Riot er sambland af tónleikum, gjörningalist og pólitískum viðburði. Hún hefur í sumar verið sýnd víðs vegar um Evrópu og hlotið mikla athygli og lof. Sýningin var að hluta til æfð og þróuð í Þjóðleikhúsinu nú á vordögum, rétt eftir að Masha Alyokhina forsprakki hópsins kom sér hingað undan klóm rússnesks óréttlætis.
Sýningin er skipulögð í samhengi við fyrstu yfirlitssýningu Pussy Riot sem opnar í Kling & Bang í lok nóvember.

Gjörningar Pussy Roiot er án efa einhverjir mikilvæguastu pólitísku listaverk 21. aldarinnar. Ef einhverjir listamenn hafa gefið allt fyrir listina þá eru það þessir töffarar. Þungamiðjan í sýningunni er saga Möshu og lýsing hennar á helvítinu sem Rússland Pútíns er. Glerhörð kvöldstund sem kýlir beint í magann og á sér í alvöru talað engan sinn líka.

Ragnar Kjartansson

Saga andófs og uppreisnar gegn kúgun og ritskoðun

 Pussy Riot er upphaflega feminísk pönkhljómsveit sem einsetti sér að vekja athygli á réttindabaráttu minnihlutahópa og berjast gegn Pútín og stefnu hans. Pussy Riot vakti heimsathygli þegar fimm meðlimir fluttu gjörninginn „pönkbæn“ í dómkirkju í Moskvu og birtu síðar myndband af atburðinum á netinu. Í kjölfarið voru þrjár þeirra dæmdar til tveggja ára refsivistar í vinnubúðum. Rússnesk yfirvöld sættu mikilli gagnrýni af alþjóðasamfélaginu og þótti dómurinn aðför að málfrelsi. Konurnar voru þó ekki látnar lausar fyrr en 21. mánuði síðar eftir kröftug mótmæli mannréttindasamtaka víða um heim. 

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími