/
Ljóð fyrir þjóð
Leikhús í skugga samkomubanns

Þegar leikarar Þjóðleikhússins lásu ljóð fyrir einn gest í sal

Þjóðleikhúsið og RÚV tóku höndum saman í mars árið 2020 um að skemmta landsmönnum þegar fordæmalaust samkomubann var sett á vegna Covid. Lítið vissum við þá að þetta yrði fyrsta samkomubannið af nokkrum sem vænta mátti næstu mánuði og ár.
Ljóð fyrir þjóð var viðbragð við þessum veruleika; Ttilraun til þess að færa leikhúsið heim í stofu. Einum gesti var þó boðið að sitja hvern lestur en viðkomandi hafði þá verið dreginn út því  almenningi bauðst að velja eftirlætisljóð og fá einkalestur frá leikurum á stóra sviði Þjóðleikhússins.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími