/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Ólíver Þorsteinsson

Leikskáld
/

Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson hafa samið tvo söngleiki í sameiningu, söngleikinn Ormstungu sem sýndur er í Þjóðleikhúsinu í vetur og söngleikinn Þorskasögu sem sýndur var í sumarleikhúsinu Afturámóti. Þeir vinna nú fyrir Þjóðleikhúsið að sínum þriðja söngleik.

Ólíver Þorsteinsson hefur starfað sem útgefandi hjá LEÓ bókaútgáfu í fimm ár og gefið út ólíkar tegundir bóka eftir fjölda rithöfunda. Sjálfur hefur hann skrifað bækur og barnaefni fyrir hlaðvarpið Ingu og Draugsa. Fyrsta bókin hans, Í hjarta mínu, og barnabókin Þegar leikskólakennararnir hurfu hafa verið þýddar á erlend tungumál og hlotið góðar viðtökur víða. Einnig voru bækur hans Langafi minn Supermann og Langafi minn Supermann – jólastund tilnefndar til Storytel-verðlaunanna í flokki barna- og ungmennabókmennta.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími