Ólafur Jóhann Ólafsson hefur notið fádæma vinsælda fyrir skáldverk sín en hann hefur sent frá sér fjölda skáldsagna, smásögur, ljóð og leikrit.
Þjóðleikhúsið sýnir leikrit Ólafs Jóhanns Íbúð 10B í vetur, í leikstjórn Baltasars Kormáks.
Ólafur Jóhann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006 fyrir Aldingarðinn, safn tengdra smásagna, Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana fyrir skáldsöguna Snertingu 2020 og Edduverðlaunin 2025 fyrir handrit þeirra Baltasars Kormáks að samnefndri kvikmynd en hún hlaut mikið lof bæði heima og erlendis. Í Bandaríkjunum hlaut Ólafur Jóhann O. Henry verðlaunin árið 2008, og hefur auk þess verið tilnefndur til bæði IMPAC-verðlaunanna og Frank O’Connor-verðlaunanna. Bækur hans hafa verið gefnar út víða um heim á fleiri en tuttugu tungumálum.
Ólafur Jóhann hefur áður samið leikritin Rakstur sem var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2003, Sniglaveisluna sem var frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar og Leikfélagi Íslands í Iðnó árið 2001 og Fjögur hjörtu sem var frumsýnt í Loftkastalanum árið 1997.
Ólafur Jóhann starfaði um árabil sem forstjóri hjá Sony í Bandaríkjunum og lengi sem aðstoðarforstjóri Time Warner fjölmiðlasamsteypunnar. Hann hefur setið í stjórn fjölda fyrirtækja, samtaka og stofnana, þar á meðal Brandeis University í Boston og Atlantic Theater Company í New York, þar sem hann hefur verið stjórnarformaður í rúma tvo áratugi.