Leikmynd og búningar
Ingibjörg Jara Sigurðardóttir lauk meistaraprófi í leikmyndahönnun frá Universität der Künste í Berlín árið 2014. Hún hannar leikmynd og búninga fyrir Gæðablóð í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hún hefur hannað leikmyndir og búninga fyrir m.a. Schaubühne og Sophiensäle í Berlín, WLB Stuttgart-Esslingen, Opera Zuid í Maastricht, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Borgarleikhúsið í Reykjavík. Einnig hefur hún verið aðstoðarleikmyndahöfundur hjá m.a. Karl-Ernst Herrmann og Herbert Fritsch við Berliner Ensemble, Deutsches Schauspielhaus Hamburg, Deutsche Oper Berlin og Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn. Ingibjörg hefur jafnframt, í samstarfi við Visionis Reykjavik, hannað sýningar fyrir Náttúruminjasafn Íslands, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Hönnunarsafn Íslands og Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn. Sýning Náttúruminjasafns Íslands, Vatnið í íslenskri náttúru, hlaut Red Dot hönnunarverðlaunin árið 2019 og var tilnefnd til Evrópsku safnaverðlaunanna árið 2022. Nú síðast hannaði Ingibjörg leikmynd og búninga við Ritual í Eldborg í Hörpu, í samstarfi við Marvöðu og Yo-Yo Ma.
Ljósmyndari: Antje Taiga.