Improv-Ísland

Improv-Ísland

Allt getur gerst
SVIÐ
Kjallarinn
Lengd
90 mín.
Verð
3.500 kr.

Sprenghlægileg kvöldskemmtun!

Spunasýningar Improv Ísland verða á sínum stað á miðvikudagskvöldum í vetur. Þær hafa kitlað hláturtaugar Kjallaragesta frá árinu 2016 og fest sig rækilega í sessi meðal skemmtilegustu viðburða íslenskrar sviðslistasenu. Fjöldi áhorfenda kemur aftur og aftur enda eru engar tvær sýningar eins. Hver sýning er í senn frumsýning og lokasýning á fersku gríni sem verður til á staðnum og oft koma þjóðþekktir gestir við sögu. Improv Ísland fékk tilnefningu til hvatningarverðlauna Grímunnar vorið 2026.

Miðvikudagskvöld: Á miðvikudagskvöldum kíkir þjóðþekkt fólk í Þjóðleikhúskjallarann og segir sögur úr eigin lífi sem hópurinn notar sem efnivið fyrir sýningu kvöldsins. Engin sýning er eins!
Þriðjudagskvöld: Einu sinni í mánuði eiga nýliðar Improv Íslands sviðið og sýna Haraldinn (e. Harold). Haraldurinn er eitt allra þekktasta form spunans og hefur verið sýnt um allan heim frá því það var fundið upp í Kaliforníu árið 1967.
Þemasýningar: Einu sinni á önn tjaldar Improv Ísland öllu til og býður upp á sýningar út frá þemum þar sem söngur og dans ásamt gleði og gríni eru allt umlykjandi.

Listrænn stjórnandi: Sara Rut Arnardóttir.

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími