Örvar Smárason er ljóðskáld, rithöfundur, tónskáld, plötusnúður og tónlistarmaður. Hann semur tónlist fyrir Nýtt eldhús eftir máli í Þjóðleikhúsinu. Örvar lærði handritaskrif við kvikmyndaskólann FAMU í Prag, útskrifaðist úr Háskóla Íslands með BA próf í kvikmyndafræði árið 2013 og meistarapróf í ritlist árið 2021. Hann er einn af stofnmeðlimum hljómsveitanna múm, FM Belfast og Team Dreams. Örvar hefur sent frá sér fjölmargar bækur, nú síðast smásagnasafnið Svefngrímuna, sem hann hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir.