Gagnkynhneigð - landsátak

Gagnkynhneigð – landsátak

Opnum umræðuna um gagnkynhneigð!
Í samstarfi við Kviss búmm bang
Svið
Kassinn
Frumsýning
3.4. 2027

Ekkert minna en landsátak dugar!

Sviðslistahópurinn Kviss búmm bang býður upp á skemmtidagskrá þar sem þjóðinni gefst færi á að fræðast ítarlega um hina rómuðu gagnkynhneigð. Boðið verður upp á atriði úr samfélagi gagnkynhneigðra, slóðir þeirra heimsóttar og hulunni svipt af merkilegri sögu gagnkynhneigðar, uppruna og merkingu. Hvaðan sprettur gagnkynhneigð? Hvers vegna kemur hún fram? Kemur okkur eitthvað við hvað þetta fólk er að gera í svefnherberginu?

Leikarar

Fyrsta sýning Kviss búmm bang í Þjóðleikhúsinu

Sviðslistahópurinn Kviss búmm bang er skipaður þeim Evu Rún Snorradóttur, Evu Björk Kaaber og Vilborgu Ólafsdóttur, sem hafa bakgrunn meðal annars í sviðslistum, bókmenntum, myndlist og gjörningalist. Hópurinn hefur vakið mikla athygli jafnt innanlands sem utan frá því að hann tók til starfa árið 2009, og hefur meðal annars verið boðið á virtar listahátíðir á borð við Wiener Festwochen, Baltic Circle og SPRING Festival í Utrecht.

Sýningar Kviss búmm bang einkennast af leikgleði, tilraunamennsku og óvæntum uppákomum, og brjóta upp sýn okkar á hversdagsleikann með skemmtilegum hætti. Áhorfendur verða gjarnan þátttakendur í sýningum hópsins, enda tengjast þær beint daglegu lífi og spurningum um samfélag okkar. Nú stígur Kviss búmm bang í fyrsta sinn á leiksvið í Þjóðleikhúsinu. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar!

Listrænir stjórnendur

Leikmynd og búningar
Listræn ráðgjöf
Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 18.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími