Finnur Bjarnason er óperustjóri.
Finnur nam söng á Íslandi og síðar við Guildhall School of Music and Drama og National Opera Studio í London. Á fyrstu starfsárum sínum sem söngvari starfaði hann við Glyndebourne Touring og Festival Opera áður en hann var fastráðinn einsöngvari við Komische Oper í Berlín, þar sem hann söng fjölmörg lýrísk tenórhlutverk, meðal annars Belmonte, Tamino, Don Ottavio og Lenski. Síðar hefur hann komið fram í helstu óperuhúsum Evrópu, þar á meðal í Staatsoper í Berlín, Châtelet og Théâtre des Champs-Élysées í París, Bayerische Staatsoper í München, auk óperuhúsanna í Leipzig, Amsterdam, Brussel, Strassborg og Aix-en-Provence, og unnið með mörgum af fremstu hljómsveitarstjórum og leikstjórum Evrópu.
Sem söngvari hefur Finnur tekið þátt í fjölda hljóðritana og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir upptöku á öllum sönglögum Jóns Leifs.
Árið 2020 lauk hann MA-gráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og starfaði í framhaldi af því m.a. að rannsóknum á menningarstjórnun. Árið 2023 var hann ráðinn verkefnastjóri við undirbúning að stofnun nýrrar þjóðaróperu.