/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Jóhann Axel Ingólfsson

/

Jóhann Axel Ingólfsson útskrifaðist sem leikari frá Stella Adler Studio of Acting í New York 2016. Eftir útskrift var hann fastráðinn hjá Leikfélagi Akureyrar þar sem hann lék í fjölda sýning á borð við “Shakespír eins og hann leggur sig”, “Krunk krunk og dirrendí”, “Galdradgáttin”,”Gallsteinar afa Gissa” og í söngleiknum “Kabarett”. Auk þess tók hann þátt í að skapa og lék í sýningunni “Djákninn á Myrká” með leikhópnum Miðnætti.

Jóhann hefur einnig leikið fyrir sjónvarp og má þar nefna þættina “Þorri og Þura, vinir í raun”, “Jólastundin okkar” 2023, “Jóladagatal RÚV” 2024 “Elma” og þættina “Felix og Klara” í leikstjórn Ragnars Bragasonar. Meðfram því hefur Jóhann samið tónlist fyrir leikhús og starfað sem píanóleikari í ýmsum verkefnum og hljómsveitum.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími