/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Ingibjörg Jara Sigurðardóttir

/

Leikmynd og búningar

Ingibjörg Jara Sigurðardóttir lauk meistaraprófi sem leikmyndahöfundur frá Universität der Künste í Berlín árið 2014. Hún gerir leikmynd og búninga fyrir Gæðablóð í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hún hefur gert leikmyndir og búninga fyrir m.a. Schaubühne og Sophiensäle í Berlín, WLB Stuttgart-Esslingen, Opera Zuid í Maastricht, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Borgarleikhúsið í Reykjavík. Einnig hefur hún verið aðstoðarleikmyndahöfundur hjá m.a. Karl-Ernst Herrmann og Herbert Fritsch við Berliner Ensemble, Deutsches Schauspielhaus Hamburg, Deutsche Oper Berlin og Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn. Ingibjörg hefur jafnframt, í samstarfi við Visionis Reykjavik, hannað sýningar fyrir Náttúruminjasafn Íslands, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Hönnunarsafn Íslands og Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn. Sýning Náttúruminjasafns Íslands, Vatnið í íslenskri náttúru, hlaut Red Dot hönnunarverðlaunin árið 2019 og var tilnefnd til Evrópsku safnaverðlaunanna árið 2022. Nú síðast gerði Ingibjörg leikmynd og búninga við Ritual í Eldborg í Hörpu, í samstarfi við Marvöðu og Yo-Yo Ma.

Ljósmyndari: Antje Taiga.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími