/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Úlfur Hansson

/

Úlfur Hansson og Gyða Valtýsdóttir, sem skipa R • O • R, semja tónlist fyrir sýningu Þjóðleikhússins á Þetta er gjöf.

Úlfur Hansson er tónskáld, hljóðlistamaður og hljóðfærahönnuður. Hann lauk BA-prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og meistaragráðu frá Mills College í Bandaríkjunum. Tónsmíðar hans spanna vítt svið, og ná m.a. yfir tilraunakennda raftónlist, þungarokk og klassíska nútímatónlist. Hann hefur sent frá sér fjórar sólóplötur og tvær af plötum hans hafa verið tilnefndar til Kramer-verðlaunanna. Hann hefur samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands, Nordic Affect og Myrka Músíkdaga. Hann hefur jafnframt unnið að tónsmíðum fyrir kvikmyndir, heimildamyndir og sjónvarpsþætti. Hann hefur unnið með fjölda tónlistarmanna sem hljóðfæraleikari, útsetjari og upptökustjóri. Hann hefur m.a. stýrt upptökum á plötum eftir Gyðu Valtýsdóttur, og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir upptökustjórn á plötu hennar Ox. Úlfur og Gyða skipa tvíeykið R-O-R sem sendi frá sér plötuna Auga. Úlfur hefur unnið að hönnun hljóð- og rýmisskúlptúra ásamt Elínu Hansdóttur. Hann hefur einnig lagt stund á hönnun og smíði rafhljóðfæra. Hann hlaut Guthman Musical Instrument verðlaunin og nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir segulhörpu sína, sem notuð var á Cornucopia-tónleikaferð Bjarkar.

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími