Bára Gísladóttir er tónskáld og kontrabassaleikari búsett í Kaupmannahöfn. Hún semur tónlist fyrir Óresteiu í Þjóðleikhúsinu í vetur. Tónlist hennar snýst að miklu leyti um að nálgast hljóð sem lifandi veru en verk hennar hafa verið flutt af hljómsveitum og einleikurum víða um heim á borð við Barokkbandið Brák, DR Symfoniorkester, Ensemble InterContemporain, Ensemble Recherche, Orchestre Philharmonique de Radio France, Riot Ensemble, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Solistenensemble Kaleidoskop, DR Vokalensemblet og WDR Sinfonieorchester. Verk hennar hafa verið valin á hátíðir á borð við Ars Electronica, MaerzMusik, Myrka músíkdaga, Darmstädter Ferienkurse, Festival Musica, Huddersfield Contemporary Music Festival, SPOR Festival, Ultima Festivalen, Warsaw Autumn og Wittener Tage für neue Kammermusik. Bára hefur hlotið fjölda verðlauna, meðal annars æðstu tónlistarverðlaun Danmerkur, heiðursverðlaun Carl Nielsen og Anne Marie Carl-Nielsen, og ein virtustu verðlaun sem veitt eru fyrir samtímatónlist, Ernst von Siemens tónskáldaverðlaunin. Bára hefur gefið út fjölda platna, nú síðast Orchestral Works (Dacapo). Bára leikur gjarnan eigin tónlist en er einnig kontrabassaleikari í Kammersveitinni Elju. Þá hefur hún komið fram sem einleikari með fjölda hljómsveita, m.a. Copenhagen Phil og Sinfóníuhljómsveit Íslands við flutning eigin kontrabassakonserts, Hringlu, en í febrúar n.k. leikur hún konsertinn með BBC Symphony Orchestra.
Ljósmynd: Anna Maggý.